Nýtt Blogg á nýju ári með nýju viðhorfi og nýju markmiðum
Sæl öll sömul
ég vil fyrst og fremst óska ykkur gleðilegt nýtt ár og ég þakka kærlega fyrir það gamla og fyrir allan stuðning sem þið hafið veitt mér síðasta ár
en já ég hef verið mikið að íhuga hvort ég eigi að leggja niður gangstabarbie bloggið niður og hætta alveg öllu bloggi
ég veit ég hef litið bloggað undir það síðasta á síðasta ári. og ákvað að taka ágætishvíld frá bloggi og netvæðingu í smá tíma þá tala ég um bæðí blogg og vinnslu við netsíður.
nýtt ár er loksins gengið í garð og vekur það hjá manni blendnar tilfinningar. bara aðallega vegna þess að mér fannst ég vera að fagna nýju ári. en já stefnan heldur áfram í ár að vinna í hugafari og likamsbreytingum :) það hefur tekst vel á síðasta ári enda hefur c.a 15 kg farið á síðasta ári :D og er mjög stolt af því
vinnan er að blómstra hjá mér og ég er mjög ánægð
annars vildi kasta á ykkur kveðjur og kem til með að reyna að blogga oftar
hvað er á döfinni á næstunni?
árshátið í vinnunni
Breyting á einu ári
Loksins Blogg
ég hef nú ekki afskaplega frá miklu að segja. bara búin að vera sama sagan undanfarið.
en annars vildi bara deila svolitlu skemmtilegu.
Elvar frændi minn sem býr í Drammen í Noregi kom á mig á MSN laugardagsnóttina og sagðist vera á leið tíl Íslands með 10-15 manna vinahóp að djamma á íslandi um áramótin hehehe :D satt að segja hann sagði að ég fengi ekki að sleppa frá að ég verð að vera með. því að ég er víst skemmtileg full og með uppistandara brandarana í hægri og vinstri :) en já hann og ég vorum eitthvað að spjalla og plana svona nokkurn veginn og hann sagðist vera að djamma aftur á íslandi um áramót. hann gerði það síðast árið 1999-2000 og það var víst mjög skemmtilegt og ég var víst það ölvuð að það er ekki frásögu færandi. og þannig vill hann mig víst aftur lol!!!
en já við ætlum víst að plana og halda party saman. hann er að spá að leigja út svítu til að gista í að sjálfsögðu og ég á að mæta með partýið þangað. ég sagði auðvitað. ég á auðvitað ekki svona margar vinkonur fyrir alla strákana.....flestar giftar og fráteknar...útlit fyrir það að ég verði ein með bunch af flottum vöðvastæltum strákum, verð bara eins og "Britney Spears" með fullllllllll af lífverðum. ekki amalegt er það nú. fullt af strákum til að passa mig um áramótin. þá má enginn lemja mig þá :p heheh
en
já ég ákvaðað skoða vinalistann hjá Elvari á Facebook til að sjá svona vinahópinn og hvenrig strákarnir litu út. hann á víst flotta vini. ég get ekki neitað því en hjartað tók tvöfalt auka slag þegar ég sá eitt nafn þarna. það er víst nafn á strák sem ég er búin að hugsa um af og til síðastliðinn 17 ár. Pål heitir hann víst, ætla ekki að skrifa allt nafnið á honum en vá ég fékk bara fullt af aukaslögum. man bara tíðina sem ég fór til Noregs 1991 í heimsókn til Stínu og Konna og Co (Einar og Elvar. Helena frænka var ekki fædd þá) hehe en já við vorum þarna í nokkrar vikur og það voru með þeim bestu vikur sem ég hef upplifað á minu æsku árum. ég var 11 ára gömul. svona komin á 12ta árið. og hékk með Einar og 2 vinum hans það er víst Pål og Jon Erik. en já ég man ég var svo skotin í Pål, ég kalla hann æsku ástina því að ég man ég var hrikalega hrifin af stráknum. hvernig var það ekki hægt. hann var mjög sætur strákur með blá augu og ljóst mikið hár :) hehehe..alveg gersamlega andstæðan min :) en já ég man alla vega við brölluðum mikið á þessum tíma..stríða hinu og þessu fólki í gö-tunni og svo var farið í alls konar leiki þótt ég skildi ekki mjög vel norskuna en þá lærði ég eitthvað þarna (sem ég er búin að gleyma í dag) og svo fékk ég að koma með í skólann og sat í bekknum að hlusta á norskuna haha en já ég kenndi þeim meira segja að teikna :p og í dag er Elvar frændi orðin snillingur í að teikna..allt mér að þakka að hann fann leið sína þar :p
en já ég man þá tíðina að við héldum smá grill þarna heima hjá Einari og Elvari..og félagarnir voru þarna lika..æi það var svo gaman og ég man tíðina lika að ég þurfti að fara heim og grét því að mig langaði ekki að fara. langaði ekki að fara frá Pål og meira segja nefndi það við mömmu að flytja til Noregs hahaha
en já það var erfið stund og ég lofaði þv´ði að koma aftur til noregs og skrifaði meira segja nokkur bréf til Einars en sambandið fjaraði út :( en ég hugsaði oft til Pål á þessum tíma. man að við fórum svo aftur út til noregs árið 1993 en þá voru einar og elvar fluttir til Kyrkebö, en ég man að við fórum einn dag til Hoyanger í tívöli sem var þá..ég man að ég sá Pål þar en ´þorði ekki að heilsa honum þá orðin 13 ára :p en sé eftir að hafa ekki heilsaði honum.en man að mammma hans heilsaði mér :)
en já það liðu 15 ár...og ekkert vissi ég hvort drengurinn væri enn á lífi :) en svo á laugardaginn var....fann ég hann á facebook..og hjartað tók kipp. og ég ákvað að prófa að adda honum sem vin og skrifaði skilaboð um að ég væri frænka Einars og Elvars og ég hafði komið til Hoyanger 1991 :) og hékk mikið með honum og Jon Erik :) og viti menn drengurinn mundi eftir mér . ég viðurkenndi þarna að ég hafði verið skotin í honum þarna og þá fékk ég svar til baka að hann hafði verið það lika :D hann segist hafa komið oft til íslands þar sem bróðir hans á heima þar :) þannig að þarna myndaðist aftur samband á milli mins og hans.
við erum búin að vera að spjalla síðan á laugardagskvöld og mér finnst eins og ég hafi alltaf þekkt hann. æi sætur er hann nú lika.hefur eiginlega ekkert breyst. bara þroskast og mannast og auðvitað aðeins stæltari en hann var..hehe :D þannig vonandi kemur hann um áramótin. er farin að hlakka mjög til að hitta hann. hann stefnir að ferð til íslands fljótlega :)
jæja er búin að kjafta nóg af mér :D
jæja á maður að gera sig að fífli...
Jæja núna eru tónleikarnir afstaðnir....
nú hefst sagan
við rósa fórum til boston með lest frá scituate í átt að south station. og það var fínt að slappa af í lest í klst og þaðan löbbuðum við út af south station í leit að leigubíl og fundum einn sem vildi keyra okkur í dj´s at the party.
við vorum víst fyrstar á staðinn en allla vega gátum fengið sæti og fengum okkur að borða , maturinn var góður en smám saman fóru fólk að týnast inn. á endanum komu Kiss 108 fm stöðin inn og eftir smá tíma fór ég og kynnti mig..(sko hafði fengið mér smá í glas lol) en einn þeirra var svo svakalega spenntur að hann bara sagði "óh really" þegar ég nefndi að ég kom alla leið hingað til að vera á tónleikunum:) hann tók síðan myndir af okkur og svona. þannig að maður á eftir að birtast á þessari vefsíðu ..hver veit
http://www.kiss108.com/main.html
en já svo fór að fjölga verulega þarna inni og hávaðinn var á við fuglabjarg..verð að segja að tónleikarnir komu betur út í hávaða heldur en þessi staður..úff.. maður var farinn að hætta að heyra í tónlistinni sökum hávaða
en já við rósa ákváðum að yfirgefa staðinn kl 6:30 og löbbuðum leið okkar að TD Banknorth Garden og mættum þarna nokkrum gellum sem sögðu bara "this girl is totally ready" og benti á peysuna okkar..og sagði svo " you know he is gay" ég bara svaraði kurteislega. "you know i am not even thinking about if he is gay or not" svipurinn var alveg..ehhh "but he is gay you know" ..svo svaraði ég í lágum rómi "i don´t care " lol..... lygilegt að ameríkanar spái of mikið í einkalífum fræga fólksins. ég meina ég viðurkenni að ég kiki af og til á slúðursíður en ég þrífst ekki á því að komast að því hvort jonathan knight sé hommi ..eða single..eða giftur.eða hálfur fíll og maður..ég meina komon...það er ekki eins og hann sé verri maður fyrir vikið. lygilegt. ég hugsaði bara so what að hann sé hommi..það gerir hann ekkert að verri persónu. ég hef engan áhuga að vita hvað hann gerir í sínu persónulegu lífi. það er hans líf ekki mitt :) ég kom þangað til að sjá hann á tónleikum og skemmta mér ekki að velta fyrir mér hvort hann sé með lilla eða tattú á rassinum að neitt slíkt..alveg ótrúlegt sumt fólk ( i could go on) en samt fyrir mér er hann einn fallegasti maður heims :D


en já við héldum áfram leiðina okkar að TD Banknorth garden og vá höllinn er lygilega stór. ég á eftir að pósta myndum sem ég tók af höllinni að innan frá. en já við fundum loksins sætin okkar. og erum eiginlega bara fegnar að hafa frekar keypt miðana uppí club section heldur en í Lodge..vegna þess í club section eru leðursæti lol!!! en í lodge voru bara klappstólar
en við sáum að við höfðum bara ágætt útsýni og auðvitað sá maður ekki andlitin up close en maður vissi að þetta voru þeir.en þeir voru samt ekki eins og maurar lol! ég eiginlega hálfvorkenndi fólkinu sem var uppí svölum!!!! þar efstu meira segja..ég er ekki að skilja hvernig þau sáu nokkurn skapaðan hlut. en já rétt áður en Natasha Bendingfeld byrjaði þá var hægt að senda inn texta skilaboð á skjáinn og reynt að vinna front row miða og backstage svo að við rósa reyndum og reyndum lol...hennar skilaboð voru "Jonathan please give Asta a shoutout. Jonathan-knight.net" en ég skrifaði "we came all way from Iceland to be here tonight. we are in cluibsection 113 - greetings Asta and rosa" og ein gella fyrir framan okkur var alveg...."there is someone in this section who came all away from iceland...." og ég bara kallaði " that´s me" lol..og hun alveg "oh that´s from you!! great....you are from iceland." og ég auðvitað jánkaði og sagði að við flugum 5 tíma til að vera hérna" og hun bara óskaði okkur góðs skemmtun og ég sagði það sama við hana lol :D en já kl 7:45 byrjaði svo Natasha og hun er víst alveg rosalega góð. og byrjaði að koma með smá stemmningu rétt áður en strákarnir byrjuðu. hun spilaði held ég í rúmlega hálftíma til 45 mínútur. en svo kom smá pása fram til kl 9. og þá byrjaði tónleikanir.
satt að segja...ég missti mig..ég grét og grét og grét við introið...ég bara trúði ekki að ég væri að fara að sjá new kids á tónleikum. ég réð engan veginn við tilfinningarnar. því að þetta var rosaleg stund. satt að segja eitthvað sem ég væri til í að halda alltaf..and never let go.
svo komu strákarnir inn með lagið single...og ég bara grét..ég réð engan veginn við mig...þakka samt fyrir að það leið ekki yfir mig. ég reyndi að taka video en fyrstu videoin voru dálitið out og zoom en svo lagaðist
alla vega ég naut mín svo...fannst svo æðislegt. þeir tóku lögin (ekki í þessari röð samt)
"single"
"my favorite girl"
"no more games"
"please don´t go girl"
" ill be loving you forever "
"2 in the morning"
"tonight"
"didn´t i blow your mind"
" Valentine Girl"
"cover girl"
"hangin tough"
"step by step"
"the right stuff"
"click click click"
"twisted"
"Summertime"
"grown man"
"dirty dancing"
"if you go away"
"baby i believe in you"
Joey tók "Stay the same"
Jordan tók "give it to you"
það er kannski einhver lög sem ég er að sleppa...alla vega man ekki meira eins og er. en alla vega tónleikarnir einkenndu..reykbombum...(bláa lóns) reyk..sem steig sko upp lol...og svo rakettum og ég veit ekki hvað og hvað..ég verð að segja..þetta er sko show worth seeing! uppsetningin og allt er bara hrein út frábært. og einnig það..dansarnir voru einfaldega flottir!
ég tók helling af video þar sem myndavélinn var ekki að leyfa mér að taka myndir. það var bara eins og draugur færi inní hana og hristi hana svona rosalega til en alla vega ég á þó video til minningar og ég kem til með að pósta þau fljótlega
en alla vega tónleikarnir enduðu á "hangin tough" og það var alveg hrikalega flott þar sem þeir tóku part af "we will rock you" með Queen inní laginu...bara perfect. þeir höfðu alveg fólkið í höllinni í hendur sér.
mér fannst þetta æðislegt og leið bara vel á tónleikunum og þetta er án efa eitt það stærsta stund í minu lífi...ég bara vildi að þetta myndi aldrei hætta...:(
en já ég er búin að sjá new kids on the block og þeir eru sko HOTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT!
jæja rósa er alla vega sofandi en ég vaknaði kl 08 (sem er kl 12 á íslandi) þannig að ég er greinilega upprifin ennþá..ég er búin að skoða "programið" sem ég keypti.er risa stórt magazine....og það er svo flott..flottar myndir..svo keypti ég auðvitað boli..það er varla annað hægt :D ...annað stendur "In property of jonathan knight of new kids on the block " og hitt stendur New kids on the block...blá/svört mynd af þeim og The block neðst...
þetta eru án efa eitt það besta sem ég hef upplifað..og mig langar svo aftur!
Boston Færsla nr 1
loksins er komið fyrsta blogginu frá boston :D
fimmtudagur:
við rósa erum sko búnar að vera vel uppteknar og versla og versla og versla fyrir meira en 100þús :p
annars við lentum í boston kl 18:45. það gekk vel að fara í gegnum tollinn. og vorum svo komnar út. og sædís var ekki alveg mætt strax á svæðiði :) við vorum bara "hey you got to be kidding me" en hun birtist svo.keyrði víst hratt frá vinnunni til að sækja okkur :D
við fórum svo á TD banknorth garden til að sækja miðana þá var víst lokað og kioskið var ekki að taka við kortinu hennar sædísar :) þannig að við vorum farnar að vera smeykar um þetta. ákvaðum að bíð ameð þetta til daginn eftir og ákveða að fá okkur að borða og löbbuðum frá TD banknorth garden og leituðum að góðum stað. rákum augu í pizzu stað en hann var víst lokaður þannig að við héldum áfram...þá komum við auga á flottan stað sem heitir Dj´s at the garden. og við ákváðum að fara inn og fá okkur að borða...starfsfólkið var víst voðalega kammó og vísuðu okkur á sætin okkar..þá hófst spjall við eina starfsstúlkuna og þá komust við að´því að það verður fyrirparty á dj´s at the garden á vegum kiss fm stöðvarinnar í boston :) þannig að hun gaf okkur greinargóðar upplýsingar hvert við ættum að fara og kl hvað þetta byrjaði :D hver veit að strákarnir gætu mætt :) en já svo hófst svaka rúnt um boston þar sem GPS tækið hennar var eitthvað stórskrýtin. sendi okkur hingað og þangað um fátæk hverfi í bosto lol! það var snilld
annars við fórum svo heim og slöppuðum af og fórum snemma að sofa
föstudagur:
við vöknuðum snemma og tókum okkur til og ákváðum að kikja út með sædísi að versla. sædís ætlaði lika að tékka á miðanum okkur og slíkt :) þannig að hun skundaðist með okkur á Hanover mall og við vorum þar í smá tíma á meðan hun þurfti að skjótast heim. við rósa misstum okkur í walmart og deb plus+ og keyptum heilan helling. svo fanns ædís okkur í uppáhaldsbúðinni minni og við ákváðum að fara í South Shore plaza í Braintree og fara að versla þar :) og þar misstum við víst okkur lika :) hehehe..en alla vega sædís fer í macy´s á meðan við rósa fengum okkur að borða á cheesecake factory og við vekjum víst eftirtekt fyrir enskuna okkar. sem við erum alveg þottþétt ekki frá boston hehe..syngjum vist enskuna okkar lmao!
annars hófst síðan leit að sædísi þar sem við vissum ekki að hun hafði farið í macy ...þá var mál að leita að henni..hringja og meira..á endanum við urðum að hringja í pétur á íslandi lol! en fundum hana svo loksins í H&M búðinni. ´þar sagði hun okkur að customer service dæmið væri lokað í braintree þannig að við gátum ekki fengið miðana okkar. ég var hætt að lítast á blikuna sko. hun fékk númerið hjá ticketmaster og ákvað að hringja þangað og við gerðum það .eftir langa og erfiða "fæðingu" við spjallið við starfsmann þá komust við að því að við áttum miða til og við þuftum að fara í brockton til að sækja þá.
við fórum svo af stað til að sækja miðana en ákváðum að koma við í kohls enda var þar útsala í gangi...en við gleymdum okkur þar.þar sem klukkan var orðin svo seint að við ákváðum að bíða með ferðina til brockton þar til næsta dag. en við komum heim um kvöldmatarleytið. og slöppuðum af og fórum víst svo snemma að sofa
Laugardagur:
við vöknuðum snemma því að við ætliuðum bara í stutta ferð að ná í miðana. héðan fórum við til Brockton mallið. þetta er víst fátækt hverfi en sama um það..miðana ætlaði ég að fá! þannig að við löbbuðum inní þetta mall og löbbuðum í gegnum Sears og þaðan í Marshalls. það er víst svona hálfgert kaupfélag en með merkjarvörur á ódýru verði þannig að ég verslaði 3 skópör og íþróttafatnað á mig og lindu sys :) þaðan fórum við svo á FYE sem miðarnir okkar voru! og loksins fengum við miðana uppí hendurnar. þaðan fórum við svo á popeyes og fengum okkur að borða en jukk..feitari mat hef ég nú aldrei smakkað. ef ykkur finnst maturinn hjá KFC feitur þá er hann bara "hollur" miðað við popeyes..ekki fara þangað kæra fólk..ógeðslega feitt og greazy eitthvað. en já þaðan fórum við svo í best buy að versla diskana með new kids! og það var svo gaman að fá þetta uppí hendurnar. svo fórum við í lane bryant og þar missti rósa sig gjörsamlega! og það var svo gaman..starfsfólkið var svo INDÆLT og hverjar eru likurnar á því að lenda á öðrum new kids fan í allri boston og í fatabúð í þokkabót. við lentum á einni sem var joey fan og var einmitt að fara á sama tíma og við á tónleikana..við spjölluðium heilan helling! og ég gaf henni upp vefsíðuna mina og hun ætlaði að kikja á það :D
en já við fórum svo þaðan í target og versluðum meira! sem ætluðum ekki að versla! hah
svo þaðan fórum við svo í super stop shop að versla í matinn. þar fengum við okkur lifandi humar til að sjóða og meðlæti og við sædís vorum ekki alveg að geta hent lifandi umar í pottinn!!
þannig að við komum heim og undirbjuggum matinn og opnuðum svo pakkann og vorum alveg að flippa ég og sædís en rósa fannst þetta ekkert mál! alveg meiri lætin sem voru í kringum þessa eldamennsku! haha þetta voru svona "had to be there moment" sko :D
maturinn var svo yndislegur og við slöppuðum svo af með því að horfa á P.S I love you :) og eftir það tókum við sædís smá sport með new kids on the block. eftir það fór sædís síðan að skipuleggja lestarferðirnar okkar til boston á tónleikana og vitið menn það verðiur sko skrautlegt! :D
en já við fórum svo að sofa
Sunnudagur
jæja þá er maður vaknaður og er að fara að taka sig til fyrir ferðina til boston og á tónleikana. þannig að ég er ekki komin lengra en það þannig að þið verðið bara að bíða til morguns alla vega ég er að fara á tónleikana í kvöld :DDDDDD
þetta er án efa best skrifaði texti sem ég hef heyrt og lesið!
Hey, baby I feel it, can't conceal it, gotta reveal it
Cause I'm in the mood to give it to ya
Really gotta concentrate and now we're gonna consummate
So, lets conversate
Cause I think it's time that we became one love
One body, girl, I wanna get it started
Our own little private party, forget about tommorow right now
Right now, we could have a river tonight
Right now, right now... freakin' it however you like
Chorus:
Sexify my love, give into my touch
Baby, tonight I'm gonna set you free
Sexify my love, let your body talk
Baby, surrender all your lovin' to me
Sexify my love, sexify my love...
Girl, don't be shy, you're looking so fly,
Tonight I wanna try every position we can dream of
All over the house, workin' that thing, girl, makin' you shout
Take it fast, slow, do it like a pole slide, all the ways to get low, low...
One body, it's our own little private party
Lets do this, lets get started
Forget about tommorow, right now
Right now, we could have forever tonight
Right now, right now... freakin' however you like
Chorus
I don't care where we are, on the hood of my car
Out in public, making love in the streets
All alone, back at home, we can do anything you want
I don't care while we mess up the sheets
huh?? hvað segið þið..? er þetta ekki geðveikislega daðurslegt lag:D
Andskotinn hafi það..ég varð klukkuð
sigurrós vinkona gerðist skemmtileg með því að klukka mig svo kölluðum spurningum
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
-ISS hreingerningar
- Mjöll hreingerningar
- Viðihlíð í grindavik
- IKEA
Fjórir staðir sem ég hef búið á...
hef nú ekki búið á mörgum stöðum
- Gerðavellir 48b Grindavik (bjó þar frá fæðingu fram til 21 árs)
- Litli Dunhagi 3 . Akureyri
- Seilugranda 4 , Reykjavik (bjó þar timabundið þar til að ég fékk íbúð)
- Kleppsvegur 130, 104 Rvik
Fjórar bíómyndir sem ég held uppá
- Notebook
- Dirty Dancing
- PS i love you
- Death at a funeral
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
- CSI þættirnir (hvort sem það er Las Vegas, New York eða Miami)
- Friends
- Two and a half man
- Melrose Plac og þáttum sem heita " 8 Simple Rules: For dating my teenage Daughter" þáttur sem John Ritter heitinn lék í..alveg snilld
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríium
- Spánn
- Norðurlöndin (öll nema Finnland)
- Mallorca
- Ameríka
Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg
- Visir.is og Mbl.is
- Facebook
- einkamal.is og private.is
- Jonathan-knight.net
(annars á ég stærri rúnt hring en þetta hehe)
Fernt sem ég held uppá matarkyns
- Kjúklingur
- Humar og Krabbi, steiktur þorskur
- heimatilbúna pizzan min
- KFC borgarinn
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
það eru bara gamlar unglingabækur sem ég hef lesið oft..en man bara ekkert hvað þær heita hehe
kveðja
Ásta
klukka nú
Karen
Sólrúnu
bloggleti dauðans
ég veit ég er afskaplega löt að blogga. vildi alla vega minna á mig að ég er enn á lífi :)
alla vega sumarfríið er búið..sumarið alveg að verða búið. haustið er að nálgast og fullt af hlutum eru að gerast á næstunni.
daman skráði sig í táknmálsnámskeið með sigurrósu og gekk fyrsti tíminn vel enda kann ég alveg táknmál vildi samt byrja á grunninum til að fá upprifjun :)
en já svo líða vikurnar svo á ógnahraða að það eru einnugis 25 dagar þangað til að ég fer út til boston..næstum 3 vikur þangað til! :D get ekki beðið.
en annars vildi segja allt gott að frétta. ég nenni afskaplega litið að vera að skrifa allt það helsta sem hefur gerst í lífi minu hehe enda ekki miklar breytingar eða neitt super dúber thing :D
annars ég var að prófa að elda rétt..notaði svona grunnhugmyndir frá þættinum Rachael Ray. og fyrir þá sem eru hrifnir af brauði og eggjum þá er þtta kannski einhvern veginn réttur fyrir þig.
alla vega blandaði grænmæti í þennan rétt. það er altl hægt að gera :D
ég reif niður 1 baguette brauð (tilbúið en ekki frosið) í eldfast mót.
skar niður selleri. og 1 stk litinn vorlauk.
hálfan poka til einn poka af spínat og steikja hann uppúr EVOO (extra virgin olive oil) og saltaði og pipraði
blandaði öllu þessu grænmeti með brauðinu.
braut nokkur egg. minni að ég hafi brotið 5 egg í skál og blandaði mjólk saman við og hræri í því og kryddaði eftir smekk (ykkar uppáhalds krydd)
helli svo yfir brauðið og grænmetið og setj svo rifinn mozarella ost yfir og skelli inní ofn í 180-200 gráður hita í nokkrar mínútur. þar til að osturinn er farin fá gullin lit
vitið til..þetta er rosalega gott. en það er hægt að setja hvítlauk í stað vorlauk eða lauk að ykkar smekk eða bara skinku og aspas þá virkar þetta eins og hinn sígildi brauðréttur hehe :D
ég veit að mörgum myndu ekki þykja selleri eða spinat gott. en spinat er uppáhaldið mitt
endilega prófið einhvern tímann:D
Að fá hugdettu og framkvæma hana strax getur verið gott mál...
já af hverju segi ég það? því að góðir hlutir gerast oftast þá hehe
málið er að ég er loksins komin í sumarfrí og í gær var svo gott veður að ég ákvað að skella mér á kaffihús og fá mér að borða...sigurrós kom með mér og við tjöttuðum í smá stundum. í rauninni ætluðum við ekkert á djamm en við vorum lengi að ræða saman og allt í einu stakk sigurrós uppá því.hey hvað með að kikja suður með sjó? til grindavikur?? og ath lífið þar..við alveg jú lets go for it...og sigurrós ákvað að hringja í beggu systur sina og tjá henni hugdettuna..og hun var sátt og ákvað að draga vinkonu sina með...við keyrðum svo suður eftir með dansmúsikina á fullt og það var líf og fjör og hlátur í bílnum á leiðinni!
við vorum loksins komnar til grindavikur eftir úrhellisringingu og lélega ökuleið (grindavikurvegurinn). vegurinn var dimmur og leiðinlegur....nýbúið að malbika sumstaðár en átti eftir að mála "linurnar" og það gerði mig svo stressaða þar sem ég er svo "náttblind" þegar er dimmt veður (rigning og dimma) og dökkur vegur þá samblandast þetta einhvern veginn.en okkur tókst að lokum að komast til grindavikur og það var kikt á pöbbann á salernið en það var bara ekkret líf...4 manneskjur á pöbbnum! við vorum ekki allsherjarsátt og una hringdi bara í vin sinn í kef og ath stöðu mála þar..og við ákváðum bara að skella okkur þangað...ég varð samt að taka rúnt um grindavik og skoða....og keyrði framhjá gamla húsinu minu..svo skrýtin tilfnning að fara þangað og endurlifa æsku sina.. en já við héldum til keflavikur og þar var lika skrýtið að keyra..enda hafði ekki keyrt í miðbæ keflavik síðan árið 2001!!!!!! og ég var bara jesus minn þegar ég sá breytinguna..gatan sjálf í hafnargötunni var hellulögð en ekki malbikað..komnar bílastæði og alles bara..miðborgin orðin allt önnur saga!
en já við lögðum bílnum rétt hjá Yello og kiktum þar inn og reyndar vorum við meðal fyrstu en já.
fyrst í byrjun var mikið um hip hop og rnb músik. og það var mikið dansað.. begga og una voru duglega að flippa, enda var það bara fínt mál enda vissi enginn hver við vorum! það var súla þarna og Una og begga voru duglegar að dansa á súlunni og gera karlliðið gratt á staðnum! lol. enda sóttust margir þeirra í unu og maður beið bara eftir slagsmálum um hana hehe
en já ég dansaði og dansaði og dansaði..ég hef ekki dansað í háa herrans tíð! og ekki svona mikið svo líða tók á nóttina þá kom alvöru músikin..dans/techo músikin og þá var daman komin á heimavelli og lögin komu í runum sem ég þekkti!
en svo klukkan var að ganga 5 og við ákváðum að halda heim á leið og allar þreyttar..ég skultaði öllum heim þvert á endan reykjavíkur og ég sjálf endaði heim kl rúmlega 6!
en já þetta var snilldar kvöld og frábært djamm hjá mér systrunum og Unu. þetta verðum við að endurtaka aftur fljótlega...satt að segja það vantaði alveg þessa músik sem þessi dj kom með á staðina í bænum! alvöru músik. ég hef alvarlega verið að íhuga að gerast dj sjálf og halda 90´s kvöld! það vantar gjörsamlega!
Sigurrós, Begga og Una..ég þakka kærlega fyrir kvöldið. við endurtökum leikinn fljótlega
kveðja
